Þremur mönnum hefur verið sleppt úr haldi í tengslum við kynferðisbrot sem er sagt tengjast skipverja um borð á grænlenska togaranum, Polar Nanoq.
Í samtali við mbl.is staðfesti Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, að rannsókn standi enn yfir á kynferðisbrotamáli en vildi þó ekki staðfesta að málið tengdist tilteknu skipi. Hann staðfestir þó að mennirnir þrír séu erlendir og ekki búsettir á Íslandi.
Spurður hvort einhverjir þeirra hafi áður komist í kast við lög á Íslandi kvaðst Grímur ekki getað tjáð sig um það enda sé venjan almennt ekki sú að ræða kynferðisbrotarannsóknir á meðan þær séu enn í gangi.
Ríkisútvarpið hefur aftur á móti greint frá í fréttaflutningi sínum að skipverji á Polar Nanoq hafi verið handtekinn og sleppt úr haldi.
Það er ekki í fyrsta sinn sem togarinn er tengdur við ofbeldisglæp hér á landi en skipverjinn Thomas Møller Olsen, var dæmdur fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur árið 2017.
Samkvæmt sjóumferðar-vefsíðunni Marine Traffic lagði Polar Nanoq úr bryggju í Hafnarfirði klukkan 23:19 í gærkvöldi og er nú leið til Grænlands.