Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, segir fjögur ár af kyrrstöðu í aðgerðum varðandi loftslagsmál „ansi langan tíma“.
Gagnrýnir hann að aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum hafi ekki verið uppfærð frá árinu 2020.
Þetta kom fram í máli þingmannsins á Alþingi fyrr í dag.
Að sögn Andrésar hefur Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ítrekað verið spurður hvers vegna ekki sé búið að uppfæra áætlunina á kjörtímabilinu.
„Ný ríkisstjórn þarf ekkert endilega að gera þetta strax eftir kosningar, hún hefur samkvæmt lögum fjögur ár til að uppfæra áætlunina,“ segir Andrés vera það svar sem hann fékk.
„Sá fjögurra ára frestur rennur út eftir viku,“ bætir hann við.
Kveðst Andrés efast um að góðri áætlun verði skilað áður en sá frestur rennur út. Nefnir hann þá að ráðherra hafi ekki enn átt samráð við almenning eða náttúruverndarsamtök til að undirbúa það plagg.