Færri hótelgestir en ekki stórt áhyggjuefni að svo stöddu

Fjöldi erlendra gesta er mikill á landinu um þessar mundir.
Fjöldi erlendra gesta er mikill á landinu um þessar mundir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bókanir á hótelum landsins í júní eru minni en á sama tíma í fyrra. Viðmælendur blaðsins eru sammála um það en eru ekki svartsýnir varðandi framhaldið.

„Heldur hefur dregið úr bókunum fyrri hluta árs og það finna allir fyrir því. Apríl var ekki góður en sjálfur er ég bjartsýnn á að úr þessu rætist þegar líður á árið.

Í júní er einnig heldur minna bókað en á sama tíma í fyrra,“ segir Kristófer Oliversson, hjá Center Hotels í Reykjavík og formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu.

Sumarið byrji ekki af alvöru fyrr en 20. júní

Morgunblaðið hafði einnig samband við hótelstjóra hvorn sínu megin á landinu. Davíð Kjartansson hjá 701 Hótelum sem reka Hótel Valaskjálf og Hótel Hallormsstað og Kristján Þór Kristjánsson hjá Hótel Ísafirði.

Davíð segir bókanir til þessa í júní vera minni en í fyrra en nefnir að stundum byrji sumarið á Íslandi ekki fyrir alvöru fyrr en eftir 20. júní.

„Samdrátturinn er einhver og við finnum fyrir honum. Erfitt er hins vegar að spá fyrir um hvernig mánuðurinn endar því nú er bara 10. júní. Yfirleitt hefur verið meira um bókanir fyrir hópa en einstaklinga en það hefur snúist við í byrjun sumars.

Nú var nokkuð um afbókanir hjá hópum, til dæmis fyrr á þessu ári. Þegar margir úti í heimi voru að skoða ferðalög bárust erfiðar fréttir frá Íslandi varðandi eldgos sem hægði verulega á bókunum.“

Umfjöllunina má finna í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert