Sauðburði er nú að mestu lokið um allt land og bændur farnir að huga að undirbúningi heyskapar í sumar. Sigurður Jökulsson, bóndi á Vatni í Haukadal, segir sauðburð hafa gengið vel og undirbúningi fyrir heyskap sé að mestu lokið.
Hann segir að almennt sé staðan góð í kringum hann og enginn sé að kvarta. Hann noti verktaka til að bera á með fullkomnum tækjum því áburðurinn sé dýr og mikilvægt að nýta hann sem best.
„Áburðurinn er orðinn svo dýr að það mætti líkja þessu við kókaín, þannig að maður sáldrar þessu ekki út í loftið að gamni sínu.
Ég fæ verktaka með tölvu- og gervihnattastýrða dreifara til þess að nýta áburðinn sem mest. Það margborgar sig. Það eru nokkrir strákar í þessu og þeir standa sig vel,“ segir Sigurður.
Hann segir það hafa einkennt sauðburðinn þetta árið að vorið kom rólega og sprettan seint. Það hafi verið orðið þröngt inni, en nóg hey til að gefa.
„Sauðburðurinn gekk vel en honum fylgja miklar vökur. Aukin frjósemi hefur bæði kosti og galla sem veldur því að vinna við sauðburðinn er mikil og erfitt er að fá starfsfólk. Heyin eru góð og ræktunarframfarirnar miklar,“ segir Sigurður.
Umfjöllunin má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.