Víða skortir leyfi fyrir útiveitingum

Með hækkandi sól vilja gestir gjarnan njóta matar og drykkja …
Með hækkandi sól vilja gestir gjarnan njóta matar og drykkja utandyra. Mynd tengist ekki efninu með beinum hætti. mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarna daga haft eftirlit með veitingastöðum og kannað sérstaklega hvort umræddir staðir hafi leyfi til útiveitinga.

„Með hækkandi sól vilja gestir gjarnan njóta matar og drykkja utandyra við veitingastaði, en til að svo sé heimilt þarf slíkt að vera tilgreint á útgefnu rekstrarleyfi veitingastaða. Í þeim efnum virðist víða vera pottur brotinn, en athugasemdir hafa verið gerðar á um helmingi veitingastaðanna, sem lögreglan hefur heimsótt undanfarið,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Þar segir ennfremur að sérstaklega hafi þetta verið áberandi með áfengi en þess hafi gjarnan verið neytt á útisvæðum veitingastaða án þess að leyfi sér fyrir hendi.

Þarf að liggja fyrir starfsleyfi  frá yfirvöldum

„Samhliða rekstrarleyfi til útveitinga þarf að liggja fyrir starfsleyfi frá heilbrigðisyfirvöldum og afnotaleyfi sveitarfélags vegna borgar/bæjarlands ef það á við. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórnsýsluákvarðanir í málum sem varðar brot á rekstrarleyfi. Við slíkum brotum liggur sekt og/eða tímabundin svipting leyfis,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Fram kemur að veitingamenn hafi tekið afskiptunum vel, en þeim hefur jafnframt verið góðfúslega bent á að sækja um leyfi til útiveitinga hjá sýslumannsembættinu á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert