Ráðherrar skuli ekki hafa afskipti

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra.
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra. mbl.is/Eyþór

Dómsmálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að ráðuneyti Stjórnarráðsins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eigi ekki að hafa afskipti af því hvort eða hvernig mál séu tekin til rannsóknar sem sakamál.

Tilefni tilkynningarinnar er erindi sem Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sendi lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna netsölu áfengis til neytenda hér á landi í kjölfar erindis sem ráðuneytinu barst frá heilbrigðisráðherra um þróun áfengissölu.

„Íslenskt sakamálaréttarfar byggir á því grundvallarsjónarmiði að meðferð sakamála eigi ekki að lúta pólitískum afskiptum valdhafa. Þróun síðustu áratuga hefur verið sú að efla enn frekar sjálfstæði ákæruvalds og rannsóknarvalds. Ríkissaksóknari, sem nýtur sjálfstæðis í embætti sínu, er jafnframt æðsti yfirmaður sakamálarannsókna og tekur ekki við fyrirmælum frá neinum öðrum stjórnvöldum. Er þetta í samræmi við grundvallarreglur réttarríkisins um að sakamálarannsóknir lúti einungis lögum en ekki pólitískum afskiptum. Þróunin hérlendis hefur verið sú að færa þetta vald frá dómsmálaráðuneytinu og til ríkissaksóknara. Af þessu leiðir að dómsmálaráðuneyti og dómsmálaráðherra hafa engin afskipti af sakamálarannsóknum á Íslandi,” segir Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningunni.

Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Pólitísk afskipti af rannsóknum sakamála eru til þess fallin að grafa undan réttarríkinu. Þau geta leitt til þess að sá sem sætir rannsókn telji sig ekki hljóta réttláta málsmeðferð þar sem hlutleysis hafi ekki verið gætt við ákvörðun um saksókn. Af því leiðir að ráðuneyti stjórnarráðsins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eiga ekki að hafa afskipti af því hvort eða hvernig mál eru tekin til rannsóknar sem sakamál,“ bætir dómsmálaráðherra við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka