Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að fara í gegnum gögn frá tæknideild vegna þjófnaðarins í Hamraborg fyrir um tveimur og hálfum mánuði síðan.
Heimir Ríkarðsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, vill ekki tilgreina hver þessi gögn eru.
Hann segir málið í ákveðinni kyrrstöðu og lítið nýtt að frétta sem stendur.
Maðurinn sem var handtekinn í tengslum við málið og síðar látinn laus hefur stöðu sakbornings. Enginn annar er grunaður í málinu.
20 til 30 milljónum króna var stolið úr öryggisbifreið á vegum Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í lok mars. Enn vantar stóran hluta peninganna sem var stolið, eða um tvo þriðju hluta.
Yaris-bifreiðin sem þjófarnir voru á þegar þeir frömdu ránið er enn ófundin að sögn Heimis.
Hann segir jafnframt að vísbendingum um peningaseðla í umferð í tengslum við þjófnaðinn hafi fækkað.