Aðgerðir tengist meintu peningaþvætti og mansali

Gríska húsið við Laugaveg.
Gríska húsið við Laugaveg. Árni Sæberg

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir í tilkynningu að framkvæmd húsleitar á veitingastaðnum Gríska húsinu hafi einnig beinst að heimili í miðborginni í gær. Þar segir jafnframt að þrír hafi verið handteknir enn þeir látnir lausir að loknum yfirheyrslum. 

Samvinna fjölda stofnana og samtaka

„Aðgerðin var gerð í samvinnu við Skattinn, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu, Bjarkarhlíð og vinnustaðaeftirlit ASÍ vegna gruns um mansal, peningaþvætti, brunavarnir, að ekki væru til staðar viðeigandi leyfi til starfseminnar og aðbúnað og hollustuhætti á vinnustað. Þrír voru handteknir vegna málsins, en þeir voru síðan látnir lausir að loknum yfirheyrslum. Í kjölfar aðgerðanna lokaði heilbrigðiseftirlitið veitingastaðnum. 

„Rannsókn málsins heldur áfram en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um hana að svo stöddu,“ segir einnig í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert