Ráðherrar fóru allir í flýti út af ríkisstjórnarfundi að honum loknum í morgun. Enginn gaf mbl.is kost á viðtali og allir báru þeir fyrir sig að þurfa að flýta sér á atkvæðagreiðslu á Alþingi.
Ágreiningur er uppi um hin ýmsu mál sem liggja á borði ríkisstjórnarinnar. Þar má nefna bréfaskrif dómsmálaráðherra til fjármálaráðuneytisins, þar sem síðarnefnda ráðuneytið var skammað fyrir meint pólitísk afskipti af rannsókn lögreglu á netverslun áfengis.
En sem fyrr segir gáfu ráðherrar blaðamönnum ekki kost á viðtali þegar þeir gengu út af ríkisstjórnarfundi í Umbru í Skuggasundi upp úr kl. 11 í dag.
Sögðust þeir þurfa að flýta sér á Alþingi, þar sem þingmenn munu í dag greiða atkvæði um Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Stefnir allt í að það verði samþykkt af þingmeirihluta.