Mikið vatn er á 1. og 2. hæð Kringlunnar og er reykjarmökkur inni í verslunarmiðstöðinni.
Slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn að mestu í kvöld, en ljóst er að tjón að völdum eldsins sem kviknaði í þaki austurhluta byggingarinnar er mikið.
Ljósmyndari mbl.is tók myndirnar inni í Kringlunni í kvöld en búðareigendum var hleypt inn í verslunarmiðstöðina til þess að vitja um búðir sínar.
Ekki hafa fengist upplýsingar um hvenær hægt verði að opna Kringluna aftur.
Uppfært klukkan 22.40:
„Við erum ennþá að í Kringlunni en erum samt aðeins farin að draga úr,“ segir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu.
Dagvaktin er farin heim eftir erfiðan vinnudag og næturvaktin hefur nú tekið við.