Potturinn fjórfaldur næst

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölur réttar í kvöld.

Tveir áskrifendur skipta bónusvinningnum á milli sín og fær hvor rúmar 350 þúsund krónur í sinn hlut.

Enginn var með 1. vinning í Jókernum en fjórir miðaeigendur fengu 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur.

Tveir miðanna voru keyptir í Lottó–appinu, einn er í áskrift og einn var keyptur hjá N1, Skógarseli 10.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert