Afgreiðslu samgönguáætlunar sem tekur til áranna 2024 til 2038 hefur verið frestað og var sú niðurstaða meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar á fundi í gærkveldi. Hún mun því ekki koma til afgreiðslu á Alþingi í næstu viku, eins og ráðgert hafði verið.
Í bókun meirihluta nefndarinnar segir m.a. um ástæður frestunarinnar að mikilvægt sé að að tilteknar forsendur samgönguáætlunar, fjármögnun og samspil hennar við fjármálaáætlun liggi fyrir með skýrari hætti en nú er, áður en hægt sé að afgreiða hana.
Skýra þurfi betur samspil framkvæmda og fjármögnunar hvað gjaldtöku varðar og þær framkvæmdir sem fyrirhugað hefur verið að fjármagna með veggjöldum. Vinna verkefnastofu um gjaldtöku samvinnuverkefna hafi tekið lengri tíma en áætlað hafði verið og brýnt að hraða þeirri vinnu. Þá sé endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins ekki lokið, en æskilegt sé að honum séu gerð skil í samgönguáætlun.
Þá segir í bókuninni að meirihluti fjárlaganefndar hafi bent á í nefndaráliti um fjármálaáætlun, að myndast hafi misræmi milli gildandi samgönguáætlunar og fjárveitinga sem sé óviðunandi ástand, en frá þessu áliti er greint frá í Morgunblaðinu í dag.
„Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar telur að skýra þurfi betur þetta misræmi áður en nefndin getur lokið umfjöllun sinni um samgönguáætlun,“ segir í bókuninni.
Þar segir einnig að óvissa sé um hvort fjármögnun einnar framkvæmdar muni hafa áhrif á framkvæmd annarra samþykktra verkefna samgönguáætlunar.
„Ýmis verkefni áttu að vera hafin eða lokið samkvæmt gildandi samgönguáætlun. Skort hefur upp á að nefndin hafi fengið ítarleg og fullnægjandi gögn um stöðu stórra fjárfestingaverkefna sem varpa ljósi á framkvæmdir og fjármögnun. Það á ekki hvað síst við um framkvæmdir við Hornafjarðarfljót þar sem lagðar eru til heimildir í tillögu að samgönguáætlun, til að vega upp á móti framkvæmdakostnaði sem er nú þegar fallinn til umfram upphaflegar forsendur,“ segir í bókuninni, en orðalagið gefur til kynna að þar sem farið hafi verið fram úr fjárheimildum við verkefnið, hafi ætlunin verið að rétta stöðuna af með fjárframlagi í nýrri samgönguáætlun, þ.e. þeirri sem nú hefur verið frestað.
Ekki er ljóst á þessu stigi hvaða áhrif frestun afgreiðslu samgönguáætlunar hefur á það verkefni, en áætlað er að þar verði framkvæmt fyrir 4 milljarða í ár, eins og Morgunblaðið hefur greint frá.
Bent er á í bókuninni að mikil viðhaldsþörf sé orðin í vegakerfinu og aukið álag.
„Viðhaldsframkvæmdir virðast hafa farið umfram fjárheimildir á síðastliðnum tveimur árum m.a. vegna mikillar viðhaldsþarfar, verðlagshækkana og aukins fjármagnskostnaðar. Að þessu sögðu er mikilvægt að greina kostnaðaraukann með tilliti til framangreinds,“ segir í bókuninni.
Segir þar einnig að fram hafi komið athugasemdir við það verklag sem viðhaft sé og ljóst að skýra þurfi stöðuna frekar sem sé forsenda þess að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir um næstu skref. Mikilvægt sé að fyrir liggi fullnægjandi gögn um stöðu stórra fjárfestingaverkefna til að ná fram auknu samspili samgönguáætlunar og fjármálaáætlunar.