Kringlan verður lokuð í dag.
Þetta kemur fram í tölvupósti sem rekstarfélag Kringlunnar sendi fyrirtækjaeigendum um ellefuleytið í dag.
„Unnið var í alla nótt við reyklosun og að þurrka upp svæði sem voru á floti. Loftgæði í húsinu eru enn slæm, mikil lykt á stórum svæðum svo það er ekki forsvaranlegt að hafa opið,“ segir í póstinum.
Slökkviliðið lauk störfum við Kringluna um klukkan eitt í nótt, en á fjórða tímanum í gær braust út eldur í austurhluta byggingarinnar.