Slökkviliðið lauk störfum við Kringluna um klukkan eitt í nótt, en á fjórða tímanum í gær braust út eldur í þaki í austurhluta byggingarinnar.
Ljóst er að tjónið er mikið.
Að sögn Jónasar Árnasonar, varðstjóra hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, fóru síðustu bílar slökkviliðsins af vettvangi um klukkan eitt í nótt. Hann áætlar að 50-60 manns hafa tekið þátt í slökkvistarfinu.
Jónas segir að tjónið sé gríðarlega mikið af völdum vatns og reyks og fram undan sé mikil vinna eftir slökkvistarfið. Þá þurfti slökkviliðið að rjúfa hluta af þaki byggingarinnar í gærkvöld til að tryggja að enginn eldur logaði enn í svokölluðum eldhreiðrum.
Iðnaðarmenn voru við störf á þakinu þegar eldurinn kviknaði og er talið líklegt að hann hafi kviknað þegar verið var að bræða þakpappa.