Á morgun er stefnt á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut til austurs við Kúagerði.
Kaflinn er um 550 m að lengd og verður þrengt í eina akrein fram hjá framkvæmdasvæði. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá klukkan 5 í nótt til klukkan 17 á morgun.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.