Guðni þakkar fyrir samfylgdina

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, á Austurvelli í morgun.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, á Austurvelli í morgun. mbl.is/Eyþór

„Verjum áfram frelsi og réttindi hvers og eins en metum líka mikils samhjálp og samkennd.“

Þetta segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, í kveðju til íslensku þjóðarinnar á 80 ára afmæli lýðveldisins sem er í dag.

„Hjartanlega til hamingju með afmælið. Í dag fögnum við því að áttatíu ár eru liðin frá stofnun lýðveldis hér á landi. Sautjánda júní kom stór hluti þjóðarinnar saman á Þingvöllum þar sem hið stóra skref var loksins stigið.

Æ síðan höfum við stefnt að því að efla og styrkja okkar samfélag, veita öllum tækifæri til að sýna hvað í þeim býr, sjálfum sér og öðrum til heilla. Því skulum við halda áfram,“ segir Guðni í kveðju sinni en hann lætur af embætti forseta þann 1. ágúst næstkomandi.

Ísland er ríki meðal ríkja

Guðni segir að í 80 ár hafi rödd hins íslenska lýðveldis heyrst á alþjóðavettvangi.

„Ísland er ríki meðal ríkja, sjálfstætt smáríki sem hlýtur að styðja alþjóðasamvinnu og alþjóðalög – smáríki sem verður að berjast gegn því að vald hinna sterku ráði öllu í hörðum heimi.“

Í lok kveðju sinnar til íslensku þjóðarinnar segir Guðni:

„Njótið dagsins, kæru landar, og ég þakka innilega fyrir samfylgdina síðustu átta ár. Gangi ykkur og Íslandi allt í haginn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert