Kaffiunnandi sem fékk sér fjórfaldan espressó kaffibolla á B&S á Blönduósi kvartaði yfir verðlaginu hjá veitingastaðnum í Facebook-hópnum „Vertu á á verði - eftirlit með verðlagi“.
Kaffið kostaði hana 2.529 krónur. Inni í því verði voru fjórir stakir espessó-kaffibollar og einnota kaffimál undir drykkinn.
Venjulega er rukkað fyrir einn kaffibolla og þrjú auka skot af espressó, þegar konan pantar sér þennan drykk á öðrum kaffihúsum, að því er segir í færslu hennar á Facebook.
Þar segir að hún hafi tvisvar spurt afgreiðslustúlkuna á B&S, sem selur kaffi frá Kaffitári, hvort þetta væri örugglega rétt reiknað hjá henni, en það breytti ekki niðurstöðunni.
Uppfært klukkan 21.21:
Rekstraraðili hafði samband við konuna og sagði að um mistök hafi verið að ræða og var henni boðið að fá fá mismuninn endurgreiddan.