Quang Le, sem grunaður er um umfangsmikil mansalsbrot, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi, hefur heimsótt meint fórnarlömb í málinu.
Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í mansalsmálum hjá ASÍ segir það dæmigerða hegðun geranda í svona málum og bendir á að það sé lögreglumál ef reynt er að hafa áhrif á fórnarlömb.
Quang Le, einnig nefndur Davíð Viðarsson, hefur verið umsvifamikill á íslenskum veitingahúsmarkaði og á fasteignir víða um Reykjavík. Hann sat í gæsluvarðhaldi í um 14 vikur en var látinn laus á föstudag. Hann er í 12 vikna farbanni. Samkvæmt heimildum mbl.is sást hann á veitingastað í miðbænum um liðna helgi þar sem hann heilsaði upp á fyrrum starfsmenn sína.
Saga segir ASÍ meðvitað um að Quang Le hafi heimsótt fórnarlömb í málinu.
„Við tökum þetta trúanlega því þetta er þannig séð dæmigert í mansalsmálum að gerandinn reynir að ná aftur tökum á þolandanum. Því kemur þetta okkur ekki á óvart,“ segir Saga.
Hún bendir á að hann sé sakaður um að ná tekjum af fólki og vonandi hefur lögregla úrræði til þess að hjálpa þeim sem eru í þolendur í málinu.
„Og að lögregla hafi leiðir til þess að ætlaður gerandi sé ekki að hafa áhrif á ætlaða þolendur. Hann er með mikil ítök. Þó að við höfum markvisst verið að vinna í því að skapa traust þolenda til kerfisins en engu að síður hafa gerendur mikil ítök eftir áralanga misneytingu,“ segir Saga.
Hún segir til mikils að vinna fyrir gerendur í mansalsmálum að halda ítökum yfir fólki og því mikið undir hjá honum að ekki sé borið vitni gegn honum. Þá sé hægt að hagnast frekar á þeim.
Hún segist ekki vita til þess að vitni í málinu hafi verið hótað.
„Við vitum ekki um efni þessara samtala. En þetta lítur auðvitað út fyrir að vera þannig að viðkomandi er að reyna að hafa áhrif. Það er í það minnsta grunsamlegt ef eitt fyrsta verk meints geranda er að spjalla við vitnin í málinu og mögulega reyna að hafa áhrif á þau. Það er lögreglumál ef svo er,“ segir Saga.