Niðurstöður úr íbúakönnun landshlutanna fyrir árið 2023 hafa verið birtar. Samkvæmt könnuninni, sem framkvæmd er á fjögurra ára fresti, eru íbúar í Skagafirði hamingjusamastir landsmanna.
Þegar fleiri þættir voru skoðaðir kom Eyjafjörður einna best út og Skagafjörður þar fast á eftir í öðru sæti.
Markmið könnunarinnar er að kanna hug íbúa til búsetuskilyrða, aðstæðna á vinnumarkaði og afstöðu til mikilvægra atriða, s.s. hamingju og hvort íbúar séu á förum frá landshlutanum.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.