Marta er Reykvíkingur ársins

Marta landaði fyrsta laxinum í Elliðaánum í morgun.
Marta landaði fyrsta laxinum í Elliðaánum í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Marta Wieczorek, grunnskólakennari í Hólabrekkuskóla í Breiðholti og aðstoðarskólastjóri við Pólska skólann, er Reykvíkingur ársins 2024. 

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, tilkynnti valið í morgun við opnun Elliðaánna en þetta er í fjórtánda sinn sem Reykvíkingur ársins er valinn.

Í tilkynningu frá borginni kemur fram að Marta hafi unnið dýrmætt starf í þágu barna í borginni sem kennari við Hólabrekkuskóla en hún hefur líka unnið á leikskóla í Breiðholti. 

Marta Wieczorek ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, við skólaslit …
Marta Wieczorek ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, við skólaslit Pólska skólans 2023. Ljósmynd/Aðsend

Unnið ötullega að móðurmálskennslu

Þá segir að hún hafi unnið „ötullega við að efla móðurmálskennslu í Pólska skólanum í Reykjavík, sem var stofnaður árið 2008, þar sem lögð er áhersla á pólskukennslu samhliða því að veita mikilvægan stuðning fyrir tvítyngda nemendur á Íslandi.“

Marta kennir einnig íslenskunámskeið fyrir börn sem eru nýkomin til Reykjavíkur og er menningarsendiherra Póllands í Breiðholti en menningarsendiherrar hafa það hlutverk að brúa bilið milli ólíkra þjóða og menningarheima í hverfinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert