Lengsta umræðan á Alþingi var um fjárlög

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í ræðustól á Alþingi.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í ræðustól á Alþingi. mbl.is/Eggert Johannesson

Alþingi var frestað í nótt fram til hausts en það var að störfum frá 12. september til 16. desember 2023 og frá 22. janúar til 23. júní 2024.

Í tilkynningu frá Alþingi kemur fram að þingfundir hafi verið samtals 131 sem stóðu í rúmar 649 klukkustundir. Meðallengd þingfunda var 4 klukkustundir og 55 mínútur en lengsti þingfundur stóð yfir í 15 klukkustundir og 43 mínútur. Alls voru þingfundadagar 109 talsins.

Lengsta umræðan var um fjárlög fyrir árið 2024 en hún stóð yfir í tæpar 36 klukkustundir. Af 267 frumvörpum urðu 112 að lögum en 155 voru óútrædd. Af 178 tillögum urðu 22 af ályktunum, 156 voru óútræddar og 5 voru kallaðar aftur.

Þá kemur fram í tilkynningunni að 35 skriflegar skýrslur hafi verið lagðar fram. 25 beiðnir um skýrslur komu fram, þar af 23 til ráðherra og tvær til ríkisendurskoðanda. 13 munnlegar skýrslur ráðherra voru fluttar.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra á fjórða hundruð

Fram kemur að fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 715. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 90 og var 58 svarað. 625 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 361 þeirra svarað en 2 kallaðar aftur. 262 skriflegar fyrirspurnir biðu svars er þingi var frestað.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 1.213 og tala prentaðra þingskjala var 2.060. Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 321. Sérstakar umræður voru 27. Samtals hafa verið haldnir 547 fundir hjá fastanefndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert