Flestar umsóknir bárust Tækniskólanum

Flestir sóttu um nám í Tækniskólanum. Samtals sóttu 833 um …
Flestir sóttu um nám í Tækniskólanum. Samtals sóttu 833 um nám í skólanum sem 1. og 2. val, en aðeins 383 komust að. mbl.is/Sigurður Bogi

Alls bárust 4.677 umsóknir um pláss í framhaldsskólum landsins haustið 2024 en innritun er nú lokið. Allir nýnemar úr grunnskóla sem sóttu um pláss í framhaldsskóla hafa fengið inngöngu. Þannig var hægt að samþykkja allar umsóknir í verknám en á undanförnum árum hefur þurft að vísa stórum hluta frá vegna skorts á aðstöðu og kennurum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

84,5 prósent nemenda komust inn í þann skóla sem þau sóttu um sem fyrsta val á meðan 11,8 prósent fá pláss í þeim skóla sem þau völdu sem annað val. Þeir nemendur sem fengu hvorki inngöngu í fyrsta val né annað var úthlutað pláss í þriðja skóla og var hlutfall þeirra 3,7 prósent í ár.

Mikil aðsókn virðist vera í verknám en mesta aðsókn grunnskólanema …
Mikil aðsókn virðist vera í verknám en mesta aðsókn grunnskólanema í ár var í Tækniskólann. Tafla/Miðstöð Menntunar og skólaþjónustu

Allir nýnemar fengu inngöngu í skóla

Skipting milli starfsnáms og bóknáms er með svipuðu sniði og undanfarin ár en alls munu 17,6 prósent nemenda innritast í starfsnám næsta haust. Flestar umsóknir bárust Tækniskólanum en heildarfjölda umsókna í hvern skóla, ásamt úthlutuðum plássum má sjá í meðfylgjandi töflu.

Mennta- og barnamálaráðuneytið, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og framhaldsskólar hafa lagt höfuðáherslu á að koma öllum nýnemum úr grunnskóla að á haustönn. Unnið hefur verið að auknu námsframboði framhaldsskóla til að koma til móts við fjölbreyttan nemendahóp. 

Haft er eftir Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra í tilkynningunni.

„Með góðu samstarfi framhaldsskólanna og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hefur tekist að innrita alla nýnema undir 18 ára í framhaldsskóla. Það er mikill áfangi og vil ég þakka okkar öfluga skólafólki fyrir að svara ákallinu. Það er sérstakt ánægjuefni að sjá að skólakerfið okkar getur tekið við öllum nýnemum í verknám en það hefur einmitt verið eitt af stefnumálum ríkisstjórnarinnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert