Barnamálaráðherra segir að ráðuneytið geti ekki beitt sér í máli Yazans Tamimi, 11 ára palestínsks drengs með hrörnunarsjúkdóm sem á að vísa úr landi í næsta mánuði. Ráðuneytið megi ekki stíga inn í mál einstaklinga.
Yazan er með duchenne-heilkenni, sem er vöðvarýrnunarsjúkdómur. Hann og fjölskylda hafa búið á Íslandi í rúmt ár en þeim verður vísað úr landi í byrjun júlí. Gerist þetta í framhaldi af því að kærunefnd útlendingamála synjaði honum um vernd hér á landi.
„Þetta mál er statt hjá dómsmálaráðuneytinu og stofnunum þess. Og við í raun höfum ekki heimild til að stíga inn í einstaklingsmál með þessum hætti, og höfum ekki gögnin til þess heldur. Heldur er það hjá stofnunum dómsmálaráðuneytisins,“ segir Ásmundur Einar Daðason, barnamálaráðherra.
„Við tökum ekki einstaklingsmál til umfjöllunar. Það er hins vegar þannig að öllum stjórnvöldum ber að fara að þeim réttindum og skyldum sem eru í samfélaginu gagnvart málefnum barna og það á við í þessu máli eins og öðru. Við höfum undirgengið skuldbindingar Sameinuðu þjóðanna,“ bætir Ásmundur við.
Til stendur að senda fjölskylduna til Spánar, en þar hefur hún heldur ekki fengið vernd að sögn aðstandenda.
Yazan var um helgina undir eftirliti lækna á Barnaspítala Hringsins, þar sem hann neitaði að taka lyf sín í eftir að honum var tilkynnt um að hann þyrfti að yfirgefa landið.
Aðstandendur Yazans hafa sagt við mbl.is að drengurinn glími við mikið þunglyndi.