Miklar skemmdir urðu í eldsvoðanum á Höfðatorgi að Katrínartúni 2 fyrr í dag. Mikinn eld mátti sjá inni á veitingastaðnum Intro á jarðhæðinni og að sögn viðbragðsaðila var vatnstjónið meira en tjónið vegna elds.
Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is fyrir skömmu að vatnstjónið hafi mögulega verið meira en tjónið sem hlaust af sjálfum eldinum.
Á meðfylgjandi myndum má sjá tjónið innan úr byggingunni.
Miklar skemmdir urðu eftir eldsvoða á Höfðatorgi í dag.
mbl.is/Anton
Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is að tjónið væri mögulega meira af völdum vatns heldur en elds.
mbl.is/Anton
Þó að tjónið hafi verið mikið þá fór betur en horfði vegna öflugs úðakerfis.
mbl.is/Anton
Rjúkandi rústir á vettvangi.
mbl.is/Anton
Byggingin var að mestu rýmd.
mbl.is/Anton
Búið er að hleypa fólki aftur í örugg rými inn í byggingunni.
mbl.is/Anton
Miklar skemmdir urðu eftir eldsvoða á Höfðatorgi í dag.
mbl.is/Anton
Eldurinn var á veitingastaðnum Intro.
mbl.is/Anton