RÚV og Sýn fara yfir verkferla

RÚV og Sýn fara yfir verkferla.
RÚV og Sýn fara yfir verkferla. Eggert Jóhannesson

Sýn hefur virkjað þverfaglegt teymi sérfræðinga til að fara yfir hvort hættu sé að finna í kerfi Sýnar í kjölfar netárásarinnar sem Árvakur varð fyrir síðastliðna helgi. Þetta segir Gunnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri yfir rekstri/upplýsingatæknisviði Sýnar, í skriflegu svari til Morgunblaðsins.

Á sunnudaginn varð Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, fyrir stórfelldri netárás þar sem gögnum úr innra kerfi hans var læst og þau dulkóðuð, ekkert bendir þó til þess að upplýsingum hafi verið lekið.

Leita að veikleikum í kerfum

„Ógnir tengdar netárásum er hægt að lágmarka með markvissum fyrirbyggjandi hætti en erfitt er að sjá fyrir hvar árásaraðilar bera næst niður [...]. Við erum því alltaf að reyna að besta varnir samstæðunnar og þroska viðbrögð við hvers kyns árásum og útföllum sem kunna að verða. Þannig að síðustu sólarhringar okkar hafa eðlilega litast af því sem þið upplifðuð svo harkalega,“ segir Gunnar og sendir Árvakri baráttukveðjur. Ríkisútvarpið hefur einnig farið yfir sínar netöryggisráðstafanir í kjölfar netárásarinnar segir Stefán Eiríksson útvarpsstjóri. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert