Nýtt kvikuhlaup eða eldgos líklegt á næstu vikum

Eldgos við Sundhnúkagígaröðina.
Eldgos við Sundhnúkagígaröðina. mbl.is/Hörður Kristleifsson

Landris í Svartsengi heldur áfram með auknum hraða og nýtt kvikuhlaup eða eldgos er líklegt á næstu vikum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands en þar segir að skjálftavirknin við Svartsengi og Sundhnúk sé mjög lítil og hafa fáir smáskjálftar mælst undanfarna daga. Hraunið sem gekk í átt að norðanverðu Sýlingarfelli hélt áfram að renna mjög hægt frá því að gosinu lauk 22. júní og er nú alveg hætt að hreyfast.

Nýjustu aflögunarmælingarnar (bæði GNSS og InSAR gervitunglamyndir) sýna að landrísið undir Svartsengi heldur áfram. Hraði landrisins jókst eftir að gosi lauk og er nú orðin meiri en það sem mældist fyrir gosið sem hófst 29. maí. Hraða aflögunar má túlka sem að kvikuinnstreymi inn í kvikuhvolfið á 4-5 km dýpi haldi áfram.

Kort þetta sýnir útbreiðslu og þykkt hraunbreiðunnar sem hefur myndast …
Kort þetta sýnir útbreiðslu og þykkt hraunbreiðunnar sem hefur myndast í eldgosinu er hófst 29. maí. Kort/Veðurstofa Íslands

Hópur frá Náttúrufræðistofnun og Landmælingum Íslands hefur unnið úr gögnum sem sérfræðingar frá Eflu, Verkís og Svarmi söfnuðu í drónaflugi yfir gosstöðvarnar 24. júní. Gögnin sýna að hraunið er nú 9,3 km2 að flatarmáli og rúmmálið um 45 milljónir m3.

Með þessar forsendur að leiðarljósi má gera ráð fyrir að kerfið muni haga sér á svipaðan hátt og áður og að nýtt kvikuinnskot og/eða eldgos muni eiga sér stað á ný á Sundhnúkssvæðinu á næstu vikum,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert