Ný lægð nálgast landið

Næsta lægð nær landi á morgun úr vestri og byrjar …
Næsta lægð nær landi á morgun úr vestri og byrjar að rigna sunnan- og vestanlands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gular viðvaranir á Austurlandi renna út núna í morgunsárið. Það dregur úr vindi og úrkomu á svæðinu. 

„Lægðin austur af landinu fjarlægist okkur nú smám saman og dregur úr vindi og úrkomu á austanverðu landinu og eru gular viðvaranir að renna út núna í morgunsárið. Austanlands hefur mælst norðvestan hvassviðri eða stormur, en mesti vindhraði mældist 30 m/s í Papey í gær og hviður hafa farið yfir 40 m/s,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Allt að 20 stiga hiti í dag

Á eftir lægðinni kemur skammlífur hæðarhryggur inn á landið seinna í dag með björtu og hægu veðri víða og allt upp í 20 stiga hita sunnanlands. Hins vegar nálgast ný lægð landið.

„Hryggurinn ætlar þó að staldra stutt við því næsta lægð nær landi á morgun úr vestri og byrjar að rigna sunnan- og vestanlands, en víða bjart veður norðaustantil og hiti upp í 22 stig þar. Eftir svalan norðvestanvindinn með rigningu og jafnvel slyddu síðasta sólarhringinn verður því mikill viðsnúningur fyrir íbúa og gesti Norðausturlands um helgina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veður­vef­ur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert