Fær ekki undanþágu til reykinga í eigin herbergi

Reykingar.
Reykingar. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Umboðsmaður Alþingis telur ekki forsendur til að gera athugasemdir við ákvörðun sveitarfélags um að samþykkja ekki beiðni íbúa hjúkrunarheimilis um undanþágu til reykinga inni á eigin herbergi.

Íbúinn kvartaði yfir málinu við umboðsmann Alþingis í byrjun október í fyrra. Ákvörðunin um að banna honum að reykja inni á herberginu byggðist m.a. á rétti starfsfólks til reyklauss umhverfis. Vísað var til þess af hálfu sveitarfélagsins sem rak heimilið að sinna þyrfti daglegri þjónustu inni á herbergjum íbúa.

Heimild til undanþágu í lögum 

Benti er á í bréfi umboðsmanns Alþingis að í lögum sé sérstaklega gert ráð fyrir heimild til að veita undanþágu frá reykingabanni á íbúðarherbergjum. Réttur starfsmanna til reyklauss vinnuumhverfis gæti ekki fortakslaust girt fyrir að heimildin væri nýtt, enda væri hjúkrunarheimilið einnig heimili þeirra sem þar dveldust. Leggja þyrfti heildstætt mat á aðstæður, þar á meðal hagsmuni annarra heimilismanna og rétt starfsfólks til reyklauss umhverfis.

Sérstök aðstaða utan herbergja

„Þótt sveitarfélagið hefði í svörum sínum lagt áherslu á rétt starfsmanna til reyklauss umhverfis gat umboðsmaður ekki betur séð en reykingabannið hefði einnig grundvallast á mati á loftræstingu og loftgæðum í einstökum rýmum og að tóbaksreykingar á herbergjum væru ekki mögulegar án þess að þær spilltu loftgæðum annarra sem þar dveldust eða störfuðu. Þá hefðu verið gerðar ráðstafanir til þess að íbúar gætu reykt í sérstakri aðstöðu utan herbergja sinna. Taldi umboðsmaður því ekki forsendur til að gera athugasemdir við þá efnislegu ákvörðun að fallast ekki á beiðni íbúans um undanþágu til reykinga inni á eigin herbergi," segir í bréfi umboðsmanns Alþingis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert