Innbrot í fataverslun í miðbænum

Nóttin var róleg hjá lögreglunni.
Nóttin var róleg hjá lögreglunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um innbrot í fataverslun í miðbænum. Málið er til rannsóknar.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í dagbókinni er jafnframt tekið fram að nóttin hafi verið róleg.

Í miðbænum var einnig tilkynnt um innbrot og þjófnað á skemmtistað.

Þá var tilkynnt um þjófnað á vespu í Breiðholti.

Nokkuð var tilkynnt um einstaklinga í annarlegu ástandi á varðsvæði lögreglustöðvar 1, en hún sinnir verkefnum í stórum hluta borgarinnar og á Seltjarnarnesi. Í dagbókinni kemur fram að þeir hafi ýmist gengið á brott eða þeim verið komið til sín heima.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert