Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að „stórárás á Íslendinga“ sé í gangi á facebook um þessar mundir.
Í færslu lögreglunnar á facebook segir að lögreglan og aðrir sem fylgjast með netárásum hafi orðið varir við umfangsmikla tilraun til „vefveiða“ á Íslendinga.
„Undirbúningur glæpamannanna er vandaður. Þeir byrja með auglýsingum á Facebook þar sem þeir hafa stolið myndum af þekktum Íslendingum. Tilgangurinn er að veiða fólk inn í falska fjárfestinga svikamyllu og þannig stela af fólki peningum,“ segir í færslunni.
Lögreglan birtir svo skjáskot svikaauglýsingum og gervi fréttasíðum. Lögreglan segir að best sé að tilkynna [e. report] svona færslur til facebook sem svindl, en að öðrum kosti hundsa þær.
„Ef þið klikkið á þær þá farið þið á falska síðu sem líkir eftir mbl.is en er það alls ekki og þaðan er verið að reyna að tæla ykkur yfir á svikasíður sem líkja eftir fjárfestingasíðum en hafa þann eina tilgang að svíkja af fólki peninga, engin raunveruleg fjárfesting á sér stað.“
Lögreglan segir að þessi tiltekni glæpahópur hafi undirbúið mikinn fjölda af auglýsingum og jafnframt sett upp netsíður til að styðja við glæpinn
„Umfangið bendir til þess að þarna sé vel skipulagður hópur glæpamanna að baki.“