Samgöngustofa mun nú minna bifreiðaeigendur á skoðunartíma ökutækja sinna í gegnum Ísland.is.
Verður það gert í gegnum stafrænt pósthólf á Ísland.is sem Samgöngustofa hefur nú tengst, en með því gefst kostur á aukinni skilvirkni og betri þjónustu við viðskiptavini. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samgöngustofu.
Eins og fram kemur hér að ofan hefur Samgöngustofa tengst stafrænu pósthólfi Ísland.is. Í fyrsta áfanga verður pósthólfið nýtt til að minna fólk á skoðunartíma ökutækja sinna, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Felur það í sér að fyrsta dag skoðunarmánaðar ökutækisins fær eigandi ökutækisins póst í gegnum Ísland.is um að komið sé að skoðun. Einnig fær fólk póst um tveimur vikum áður en vanrækslugjald fellur á. Ábyrgð á því að færa ökutæki til skoðunar liggur áfram hjá eiganda eða umráðamanni þess.
„Allir einstaklingar sem fá útgefna kennitölu og allir lögaðilar sem skráðir eru í fyrirtækjaskrá hafa aðgang að sínu eigin stafræna pósthólfi á Ísland.is. Hægt er að stilla pósthólfið þannig að það sendi hnipp til eiganda þess þegar póstur hefur borist,“ segir í tilkynningunni.