Hjálmar: Aldrei verið efni til kæru

Hjálmar Jónsson áður en hann hætti störfum hjá Blaðamannafélagi Íslands.
Hjálmar Jónsson áður en hann hætti störfum hjá Blaðamannafélagi Íslands. mbl.is/Hari

Hjálmar Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands, segir það ekki hafa komið sér á óvart að núverandi stjórn félagsins hafi ákveðið að kæra hann ekki fyrir brot í starfi, enda hafi aldrei verið efni til þess að neinu leyti.

Þvert á móti hafi hann þjónað félaginu af einstakri trúmennsku og hagur félagsins blómgast þau 35 sem hann kom að trúnaðarstörfum fyrir félagið.

„Ef efni máls væru með þeim hætti sem látið er liggja að í bréfi stjórnarinnar til félagsmanna, hvers vegna er þá ekki sagt amen eftir efninu og þessari ólánsför framhaldið? Skildi það vera vegna þess að þá myndi fátækt þessa málatilbúnaðar alls opinberast?“ segir Hjálmar í athugasemd sinni vegna bréfs stjórnar BÍ.

„Aðför að æru minni“

„Athugun á bókhaldi félagsins síðastliðin tíu ár skilar engu þegar upp er staðið, það er staðreynd málsins. Öllum atriðum hefur verið svarað með fullnægjandi hætti, þó reynt sé að láta það líta öðruvísi út til að réttlæta þann fjáraustur sem þessi aðför að æru minni hefur kostað. Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús!“

Hjálmar kveðst hafa staðið vörð um orðstír félagsins, líkt og honum bar að gera.

„Ástæðan fyrir þessari aðför að æru minni er að ég var afdráttarlaus um það að núverandi formaður félagsins er ekki hæfur til þess að veita félaginu forystu vegna frétta af skattamálum hennar, sem ekki hafa verið skýrð með fullnægjandi hætti. Blaðamenn í félaginu og í landinu þurfa að horfast í augu við það,“ segir hann jafnframt og bætir við að Blaðamannafélag Íslands sé á óheillabraut. Peningum hafi verið sóað í vitleysu og réttindi félagsmanna skert.

Hjálmar Jónsson.
Hjálmar Jónsson. mbl.is/Kristinn Magnússon

Athugasemd Hjálmars í heild sinni:

Hátt reitt til höggs

Það kemur mér ekki á óvart að núverandi stjórn Blaðamannafélags Íslands hafi ákveðið að kæra mig ekki fyrir brot í starfi framkvæmdastjóra félagsins, eins og fram kemur í tilkynningu hennar til félagsmanna Það stafar einfaldlega af því að það hafa aldrei verið efni til þess að einu eða neinu leyti.


Þvert á móti þjónaði ég félaginu af einstakri trúmennsku, þó ég segi sjálfur frá, öll þau 35 ár sem ég kom að trúnaðarstörfum fyrir félagið, með einum eða öðrum hætti. Hagur félagsins hefur blómgast með einstökum hætti á þessum tíma, ekki síst síðustu rúm 20 árin sem ég var framkvæmdastjóri félagsins.

Ef efni máls væru með þeim hætti sem látið er liggja að í bréfi stjórnarinnar til félagsmanna, hvers vegna er þá ekki sagt amen eftir efninu og þessari ólánsför framhaldið? Skildi það vera vegna þess að þá myndi fátækt þessa málatilbúnaðar alls opinberast? Athugun á bókhaldi félagsins síðastliðin tíu ár skilar engu þegar upp er staðið, það er staðreynd málsins. Öllum atriðum hefur verið svarað með fullnægjandi hætti, þó reynt sé að láta það líta öðru vísi út til að réttlæta þann fjáraustur sem þessi aðför að æru minni hefur kostað. Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús!

Staðreyndir málsins eru þessar. Ég stóð vörð um orðstír félagsins, eins og mér bar sem framkvæmdastjóri og fyrrum formaður félagsins. Ástæðan fyrir þessari aðför að æru minni er að ég var afdráttarlaus um það að núverandi formaður félagsins er ekki hæfur til þess að veita félaginu forystu vegna frétta af skattamálum hennar, sem ekki hafa verið skýrð með fullnægjandi hætti. Blaðamenn í félaginu og í landinu þurfa að horfast í augu við það.
Blaðamannafélagið er nú þegar á óheillabraut. Þar er sóað peningum í vitleysu, eins og vitundaherferð um blaðamennsku, á sama tíma og réttindi félagsmanna eru skert. 

Ætli það séu ekki núna 2 til 3 manneskjurnar sem eru að sinna því starfi sem ég sinnti einn í 20 ár og gera það mun verr en ég gerði. Ótrúlegt en því miður satt. Lítið félag eins og Blaðamannafélag Íslands þolir ekki slíka ráðstöfun fjármuna til langframa.

Hjálmar Jónsson, fyrrum framkvæmdastjóri BÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert