Hálendisvakt Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Landmannalaugum barst fyrr í dag útkall vegna göngumanns sem hafði dottið á Bláhnjúki skammt sunnan Landmannalauga. Göngumaðurinn fótbrotnaði.
mbl.is greindi frá málinu fyrr í kvöld.
Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að þegar hópurinn hafi komið að vettvangi hafi verið ljóst að erfitt yrði að bera viðkomandi frá slysstað vegna aðstæðna. Flutningur hefði reynt óþarflega mikið á sjúklinginn.
„Búið var um hinn slasaða á börum en í hóp Hálendisvaktar eru 2 sjúkraflutningamenn og í gönguhópnum var einnig læknir. Óskað var eftir því við Neyðarlínuna að þyrla yrði boðuð á staðinn til að flytja hinn slasaða af vettvangi,“ segir í tilkynningunni.
Á meðan þyrla Landhelgisgæslunnar var á leiðinni þurfti að flytja hinn slasaða í börum úr mesta brattlendinu niður á stað sem þyrlan gæti lent á.
„Björgunarfólk setti upp tryggingar og flutti sjúklinginn niður á áreyrar þarna nærri þar sem þyrlan svo lenti, sjúklingur borinn um borð og fluttur til aðhlynningar,“ segir í tilkynningunni.