Bærinn höfðar skaðabótamál gegn Vinnslustöðinni

Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Bæj­ar­ráð Vest­manna­eyja hef­ur samþykkt að fela lög­mönn­um sín­um, í sam­vinnu við HS Veit­ur, að höfða mál á hend­ur Vinnslu­stöðinni, Hug­in ehf og VÍS.

Er það vegna tjóns á vatns­lögn til Vest­manna­eyja og er farið fram á bæt­ur sem nema í hið minnsta 1,5 millj­arð króna.

Þetta var ákveðið á fundi bæj­ar­ráðs fyrr í dag.

Bóta­kröf­unni hafnað

Tjónið varð á vatns­lögn­inni eft­ir að akk­eri Hug­ins VE fest­ist í henni í nóv­em­ber á síðasta ári.

Í kröfu­bréfi Vest­manna­eyja­bæj­ar og HS Veitna á hend­ur Vinnslu­stöðinni var farið fram á full­ar bæt­ur vegna tjóns­ins, sem nem­ur að minnsta kosti 1.500 millj­ón­um króna.

„Borist hef­ur svar frá lög­manni VÍS og Hug­ins ehf, auk Vinnslu­stöðvar­inn­ar, sem fel­ur í sér að bóta­skylda er viður­kennd en bóta­kröf­unni hafnað með vís­an til heim­ild­ar í sigl­inga­lög­um um að tak­marka bæt­ur við 360 millj­ón­ir króna, nema að um stór­fellt gá­leysi hafi verið að ræða. Þá gild­ir heim­ild­in ekki,“ seg­ir í samþykkt bæj­ar­ráðs.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert