Fræsa við Gullinbrú á morgun

Í fjarska sést í Gullinbrú sem tengir Grafarvog við Höfðana.
Í fjarska sést í Gullinbrú sem tengir Grafarvog við Höfðana. mbl.is/Sigurður Bogi

Framkvæmdir verða við Gullinbrú á morgun frá kl 9 til 18.

Gullinbrú verður fræst á gatnamótum við Fjallkonuveg og Lokinhamra.

Á föstudag er gert ráð fyrir að gatan Völundarhús verði malbikuð og jafnframt Fríkirkjuvegur. Er gert ráð fyrir að framkvæmdir muni standa yfir frá kl. 9 til 16.

Ekkert verður af malbikun í Breiðavík sem fyrirhugað var að framkvæma á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert