„Lítur mjög illa út gagnvart þessum hópi fólks“

Margir íslenskir lífeyrisþegar kjósa að búa í sólarlöndum.
Margir íslenskir lífeyrisþegar kjósa að búa í sólarlöndum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ný lagabreyting um persónuafslátt lífeyrisþega sem búa erlendis hefur valdið óvissu á meðal eldra fólks. Samkvæmt breytingunni átti að afnema persónuafslátt þessara lífeyrisþega um síðustu áramót.

Stjórnarandstaðan náði þó að fresta gildistöku laganna um eitt ár í þinglokasamningi um síðustu jól, þ.e. að lögin tækju ekki gildi fyrr en 1. janúar 2025.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, lagði fram frumvarp á þinginu núna í vor, um að fella breytinguna á brott, en fékk það ekki samþykkt. Inga gagnrýnir lagabreytinguna harðlega og efast jafnframt um að hún standist jafnræðisákvæði stjórnarskrár.

„Þetta lítur mjög illa út gagnvart þessum hópi fólks,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið.

Lagabreytingin er sú að ef fólk sem býr erlendis hefur 75% eða meiri tekjur að sækja til Íslands þá geti það fengið persónuafsláttinn ef það sækir um hann.

En Inga telur að ef lagabreytingin fer í gegn ætti fólk með 75% tekjur á Íslandi að fá persónuafsláttinn sjálfkrafa, án þess að þurfa að sækja um hann.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, miðvikudag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert