Norðmaður vann rúmlega 19 milljónir

Norðmaður hafði heppnina með sér í Víkingalottóinu.
Norðmaður hafði heppnina með sér í Víkingalottóinu. Ljósmynd/Colourbox

Norðmaður nældi sér í annan vinning í Víkingalottóinu sem veitir honum rúmar 19,3 milljónir króna. Enginn tók fyrsta vinning í útdrætti kvöldsins.

Heppinn einstaklingur sem keypti miða í Lottó-app­inu hlaut hinn al-íslenska þriðja vinning sem færði honum rúmar 1,8 milljónir króna.

Miði á Selfossi skilaði tíu Lóum

Jókerinn var ekki dreginn að þessu sinni en fjórir miðaeigendur unnu annan vinning og fá 100 þúsund krónur hver.

Einn miðinn var keyptur á Olís á Selfossi, tveir miðar í Lottó-app­inu og fjórði miðinn er í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert