Reykjavíkurborg óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu fyrir næsta vetur. Verkið felst í hálkueyðingu og snjóhreinsun gatna í Reykjavík.
Í tilkynningu á vef borgarinnar kemur fram að umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur óski eftir tilboðum í vetrarþjónustu gatna og húsagatna næsta vetur 2024-2025.
Útboðin bjóða upp á að fyrirtæki og einyrkjar sem eiga vinnuvélar sem henta í vetrarþjónustu geti tekið þátt í útboðunum.
Þá er kynningarfundur haldinn á Fiskislóð 37c á fimmtudaginn 11. júlí kl. 10.
Að þessu sinni verða útboðin tvö, annars vegar fyrir stofnbrautir og hins vegar fyrir húsagötur, sem minni aðilar og einyrkjar sem hafa tæki til umráða geta tekið þátt í.