Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, segir í færslu á facebook að gjaldþrot Skagans 3X sé áfall fyrir samfélagið á Akranesi. Sendir hann svo pillu á matvælaráðherra Vinstri grænna.
„Gjaldþrot Skagans 3X á Akranesi er reiðarslag. Mest fyrir þá starfsmenn sem nú eru í óvissu um lífsviðurværi sitt og framtíðarmöguleika. En ekki síður er þetta áfall fyrir samfélagið allt á Akranesi,“ skrifar Teitur í færslu á facebook.
Hann kveðst deila þungum áhyggjum Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness, af alvarlegri stöðu atvinnulífsins á svæðinu.
„Það er af ástæðu sem barist er gegn fyrirætlunum ráðherra VG að stöðva hvalveiðar á Íslandi. Það er af ástæðu sem þrýst er á úrlausnir í orkumálum svo ekki þurfi að koma til frekari skerðinga á framleiðslu á Grundartanga og víðar vegna orkuskorts og veikburða flutningskerfis.
Hvað þá að við hættum að glutra niður margvíslegum tækifærum til atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar af þeim sökum,“ skrifar hann.