Göngumaðurinn sem viðbragðsaðilar leituðu að í Suðursveit í gær fannst látinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurlandi.
Leit hófst í gærmorgun. Ásamt lögreglu tóku björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar þátt í leitinni.
Á fjórða tímanum í gær fannst göngumaðurinn og var hann þá látinn.
Ekki verða veittar frekari upplýsingar segir í tilkynningunni.