Um 30 tilvik skráð hjá lögreglu á Írskum dögum

Írskir dagar eru nú haldnir á Akranesi.
Írskir dagar eru nú haldnir á Akranesi. mbl.is/Sigurður Bogi

Um 30 tilvik voru skráð hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt á Akranesi þar sem Írskir dagar fara nú fram. 

Þetta kemur fram í Facebook–færslu lögreglunnar á Vesturlandi.

Fjórir ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur og einn akstur undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra bakkaði á aðra bifreið.

Þrisvar sinnum kom til átaka manna í milli en meiðsli urðu lítil eða engin.

Þá hafði lögregla afskipti af þremur ölvuðum ungmennum og var þeim komið í hendur forráðamanna.

Enginn gisti fangageymslur á Akranesi í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert