Andlát: Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt

Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt er látinn.
Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt er látinn. Ljósmynd/Aðsend

Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt lést á líknardeild Landakotsspítala í gær, sunnudaginn 7. júlí, eftir langvinn veikindi. Var hann 89 ára gamall.

Skilur hann eftir sig þrjú börn, sjö barnabörn og tvö barnabarnabörn. Eftirlifandi sambýliskona Reynis er Sigríður Jóhannsdóttir tækniteiknari.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá FÍLA, Félagi íslenskra landslagsarkitekta, en hann Reynir var fyrsti formaður félagsins.

Reynir var fæddur í Reykjavík 7. ágúst 1934 og ólst þar upp fram á unglingsár. Hann fór til starfa hjá frændfólki í Noregi aðeins 15 ára að aldri og kynntist þar garðyrkju. 

Hann lauk námi við Garðyrkjuskólann á Reykjum 1953 og framhaldsnámi frá Det Kgl. Danske Haveselskabs Anlægsgartnerskole árið 1955. Útskrifaðist síðan sem landslagsarkitekt frá Kunstakademiets Arkitektskole í Kaupmannahöfn 1961.

Reynir starfaði í Danmörku að loknu námi en flutti til Íslands 1963 og stofnaði teiknistofuna Höfða með Stefáni Jónssyni arkitekt og fleirum til að vinna að fyrsta aðalskipulagi Reykjavíkur. Samhliða hóf hann rekstur teiknistofu í eigin nafni og ruddi braut fyrir lítt mótaða nýja starfsgrein.

Á síðasta ári fögnuðu starfsfélagar Reynis 60 ára samfelldum teiknistofurekstri byggðum á hans grunni, sem fyrstu árin í eigin nafni, síðar Landslagsarkitektar Reynir Vilhjálmsson og Þráinn Hauksson frá 1989 og loks sem Landslag ehf. frá árinu 1999.

Klambratún, Laugardalur og Neðra-Breiðholt 

Reynir var afkastamikill á ferli sínum og meðal hans þekktustu verka eru skipulag Neðra-Breiðholts og Árbæjarhverfis, umhverfi Reykjalundar, Klambratún, skipulag Fákssvæðis, Skrúðgarðar á Húsavík og í Hveragerði, skipulag Laugardals og Elliðaárdals, lóð Þjóðarbókhlöðunnar, Græni trefillinn, skipulag á Þingvöllum og Snjóflóðavarnir á Siglufirði.

Reynir var einn stofnenda Félags íslenskra landslagsarkitekta 1978 og fyrsti formaður félagsins. Hann var virkur félagi og stjórnarmaður í Skógræktarfélagi Reykjavíkur, söng með Karlakórnum Stefni, stundaði skíðaíþróttina með Val fram eftir aldri og hestmennsku í Fáki um langt árabil. Hann var einn af stofnendum íþróttafélagsins Fylkis.

Reynir var góður vatnslitamálari og bætti í þá iðju eftir starfslok. Hann hélt sýningu á Siglufirði 2019 þar sem viðfangsefnið var snjóflóðavarnargarðar þar í bæ og árið 2021 hélt hann sýningu í bókasafni Árbæjar undir heitinu Árbæjarlónið sem var. Reynir var félagi í Vatnslitafélagi Íslands.

Sæmdur Riddarakrossinum

Reynir hlaut fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og ævistarf. Hann var heiðursfélagi Félags íslenskra landslagsarkitekta. Sjónþing var haldið um ævistarf Reynis í Gerðubergi árið 2004. Reynir var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2010 fyrir frumherjastörf við skipulag og mótun umhverfis sama ár og hann var sæmdur Heiðursverðlaunum garðyrkjunnar.

Þá hafa verk hans unnið til verðlauna á alþjóðavísu, m.a. voru snjóflóðavarnargarðarnir á Siglufirði tilnefndir árið 2003 til evrópskra verðlauna í landslagsarkitektúr, Barba Rosa-European Landscape Prize og hlutu garðarnir þar sérstaka viðurkenningu. Árið 2022 hlaut Reynir Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands fyrir ævistarf sitt.

Reynir var frumkvöðull á sviði landslagsarkitektúrs á Íslandi og hefur haft mikil áhrif á íslenskt borgar- og bæjarlandslag og skipulag sem notið verður um ókomna tíð.

Reynir var kvæntur Svanfríði Gunnlaugsdóttur sem lést 2004. Þau eignuðust þrjú börn, Höllu sem starfaði sem bókari, Valdimar skógfræðing og Steinunni garðyrkjufræðing. Barnabörnin eru sjö og barnabarnabörn tvö.

Eftirlifandi sambýliskona Reynis er Sigríður Jóhannsdóttir tækniteiknari.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert