Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis og þingmaður Framsóknarflokksins, segir kaup Kaupfélags Skagfirðinga (KS) á allt að 100% hlutfjár í Kjarnafæði Norðlenska hf. ekki eiga leiða til þess að verðbólga og verð á kjöti hækki. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, telur ljóst að svo verði.
Eins og mbl.is greindi frá í gær hafa hluthafar í Kjarnafæði Norðlenska hf. samþykkt tilboð Kaupfélags Skagfirðinga um kaup á allt að 100% hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska hf.
Í mars voru ný búvörulög samþykkt. Þau fela meðal annars í sér undanþágu afurðastöðva í kjötiðnaði frá samkeppnislögum sem gerir þeim auðveldara fyrir að sameinast.
Ragnar Þór skrifar Facebook-færslu um umrædd kaup. Þar segir hann VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda hafa á sínum tíma sent erindi til matvælaráðherra. Farið hafi verið fram á að ráðherra myndi beita sér fyrir því að lögin um undanþágu kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum yrðu tekin til rækilegrar skoðunar, enda væru þau skaðleg neytendum, launþegum og verslun í landinu.
„Það tók ekki langan tíma að raungerast það sem við vöruðum við,“ skrifar Ragnar Þór og bætir við:
„Áhrif á hag neytenda og á verðbólgu gætu reynst almenningi dýrkeypt. Allt í boði spilltra stjórnmála.“
Í samtali við mbl.is segir Þórarinn Ingi rangt að kaupin muni hafa skaðleg áhrif á neytendur. Hann segir lagabreytingu hafa verið gerða til að stuðla að bæði hag bænda og neytenda.
„Þetta er ekki til þess fallið, og á ekki að vera til þess fallið, að hækka verð til neytenda og stuðla að hækkun á verðbólgu,“ segir Þórarinn.
Í Facebook-færslu sinni segir Ragnar Þór einnig að Finnur Magnússon, lögmaður Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, hafi hjálpað atvinnuveganefnd að skrifa fumvarpið sem varð að lögum.
„Það er út af fyrir sig athyglisvert að formaður þingnefndar staðfesti þannig opinberlega það sem ekki er hægt að kalla annað en spillingu; að lögmenn sérhagsmunasamtaka sem blasir við að hagnast á undanþágunni frá samkeppnislögum, fái að skrifa nýjan lagatexta og öllu samráðs- og umsagnarferlinu, sem málið hafði farið í gegn um, var um leið ýtt til hliðar og öðrum umsagnaraðilum gefið langt nef,“ skrifar Ragnar Þór.
Þórarinn Ingi segir Finn hafa komið fyrir nefndina, en það sé rangt að hann hafi skrifað lagafrumvarpið.
„Það er algjörlega úr lausu lofti gripið að viðkomandi aðili hafi skrifað lagafrumvarpið. Það er skrifað af nefndarsviði Alþingis. Þetta liggur allt fyrir í gögnum varðandi umsögn Samtaka fyrirtækja í landbúnaði. Auk þess kom þessi ágæti lögfræðingur fyrir nefndina þar sem að var farið yfir málið,“ segir Þórarinn.