Bílvelta varð á Suðurlandsvegi við Rauðavatn nú í kvöld og kviknaði í bílnum. Ökumaðurinn hefur verið sendur til skoðunar en engir aðrir farþegar voru um borð í bílnum.
„Bíllinn rúllaði þarna líklega einn hring, svo kviknaði í honum og var einum manni kippt út út honum og hann var fluttur til skoðunar,” segir varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is.
Ekki var hægt að greina frá ástandi ökumannsins að svo stöddu.