Ekki er til staðar sértæk viðbragðsáætlun ef kvikugangur myndi opnast undir Hengilsvæðinu í Ölfusi. Samt sem áður hefur lögreglustjórinn á Suðurlandi gert viðbragðsáætlun vegna hópslysa, að því leyti sem hún gæti átt við vegna þessarar sviðsmyndar.
Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins.
Dómsmálaráðherra segir að samkvæmt sviðsábyrgðarreglunni eigi sá sem fer með stjórn tiltekins svæðis að undirbúa fyrirbyggjandi ráðstafanir, eins og viðbragðsáætlanir.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi vinnur nú í því að meta hvort rétt sé að gera viðbragðsáætlun vegna þessarar sviðsmyndar og þá með hvaða hætti hún skuli vera.
Hafdís spurði líka hvernig tryggt yrði að vatn myndi berast til höfuðborgarsvæðisins ef eldgos yrði nærri Hellisheiðavirkjun sem sér höfuðborgarsvæðinu fyrir orku og heitu vatni.
Í svari sínu segir dómsmálaráðherra að umhverfis-,orku- og loftslagsráðuneytið fari með mál af þeim toga.