Líklegt að slæmur vegur hafi valdið bifhjólaslysi

Ekki eru líkur á að neitt refsivert hafi átt sér …
Ekki eru líkur á að neitt refsivert hafi átt sér stað. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan telur að líklegast hafi slæmur vegur valdið bifhjólaslysinu sem varð á Vestfjörðum í gær. 

Á þessu stigi málsins telur lögreglan að um óhapp hafi verið að ræða þar sem ökumaður hafi dottið af hjóli sínu. Ekki eru taldar líkur á að neitt refsivert hafi átt sér stað.

Þessu svarar Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, við fyrirspurn mbl.is.

Verið er að vinna í skýrslu málsins og ekki mikið meira hægt að segja um rannsóknina að svo stöddu.

Spurður út í líðan ökumannsins segist Helgi ekki hafa nákvæmar upplýsingar um hana að svo stöddu, en telur manninn þó ekki vera í lífshættu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert