Búið er að gefa út ákæru í máli er varðar árekstur flutningaskipsins Longdawn og strandveiðibátsins Höddu. Verður málið þingfest fyrir dómi og ákæra birt á morgun.
Þingfest verður fyrir Héraðsdómi Reykjaness kl. 13 á morgun en Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, segir að búið sé að gefa út ákæru í málinu.
Kveðst hann þó ekki geta upplýst um efnistök ákærunnar fyrr en hún hafi verið formlega birt fyrir ákærðu á morgun.
Tveir skipverjar Longdawn hafa réttarstöðu sakbornings í málinu og hafa sætt farbanni frá því í maí vegna rannsóknarhagsmuna.
Báturinn Hadda sökk norðvestur af Garðskaga 16. maí og voru skipstjóri og stýrimaður skipsins Longdawn handteknir vegna gruns um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska.