Hjólhýsi fauk út af veginum við Blönduós

Mikið rok er á Norðurlandi vestra.
Mikið rok er á Norðurlandi vestra. Ljósmynd/Aðsend

Hjólhýsi fauk út af Hringveginum nálægt Blönduósi fyrir skömmu. Engin slys eru á fólki.

Birgir Jónasson, lögreglustjóri á Norðurlandi vestra, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Lögreglustjórinn segir að hvasst sé bæði í Austur- og Vestur-Húnaþingi, auk þess sem þung umferð sé úr Reykjavík. Hann vill brýna fyrir ökumönnum að fara varlega.

Frekari upplýsingar gat hann ekki veitt.

Hjólhýsið er illa farið eftir slysið.
Hjólhýsið er illa farið eftir slysið. Ljósmynd/Aðsend

Ekkert hjólhýsaveður

Annað hjólhýsi fauk út af veginum í gær, samkvæmt því sem lögreglan skrifar á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert