Loka þarf Hellisheiði í stutta stund til austurs meðan brak er hreinsað í Kömbunum.
Þetta segir í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar.
Hjáleið er um Þrengsli.
Um hálf tíu í morgun varð umferðaróhapp í efstu beygjunni á Kömbunum. Þá sagði í tilkynningu að brak og skemmt vegrið gæti verið á veginum.
Fréttin hefur verið uppfærð.