Gert ráð fyrir 7 til 8 þúsund nýjum íbúðum á svæðinu

Áætlað er að í þessum nýja borgarhluta allt að 20.000 …
Áætlað er að í þessum nýja borgarhluta allt að 20.000 borgarbúar búið. Teikning/Reykjavíkurborg

Áætlað er að allt að 7 til 8 þúsund íbúðir rísi í Ártúnshöfða-Elliðaárvogi fyrir um 20 þúsund borgarbúa á næstu árum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Segir þar að búast megi við að flutningur á fyrirtækjum hefjist á næstu tveimur til þremur árum og að fyrstu íbúðirnar geti verið tilbúnar árin 2025 eða 2026.

Grænt íbúðahverfi

Grófu athafna- og iðnaðarsvæði verði umbreytt í grænt og þétt íbúðahverfi við lykilstöðvar Borgarlínunnar með 582 íbúðum í Ártúnshöfða. 

Lögð verði áhersla á að hönnun gatnaumhverfisins styðji við gott aðgengi allra fararmáta og miði við nýjustu útfærslur í þeim efnum.

Samþykkt deiliskipulag 2A.
Samþykkt deiliskipulag 2A. Teikning/Reykjavíkurborg

Innan rammaskipulagssvæðis Elliðaárvogs/Ártúnshöfða hafi deiliskipulagsvinnu fyrir allt að 2.980 íbúðir verið lokið og 2.520 eru í ferli.

„Þegar breyta á svona svæði sem hefur verið athafna- og iðnaðarstarfsemi um langt skeið, þá þarf til dæmis að huga að því að jarðvegurinn sé viðeigandi fyrir íbúðarhúsnæði, og skipta ef það er mengun og það getur tekið tíma,“ er haft eftir Sólveigu Sigurðardóttur arkitekt og verkefnisstjóra hjá skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar.

Svæðið í heild sinni.
Svæðið í heild sinni. Teikning/Reykjavíkurborg

Einstök staðsetning

Staðsetning svæðisins er einstök með nálægð við strandlengjuna og útivistarsvæði Elliðaárdals. Miðlæg lega þess á höfuðborgarsvæðinu og nálægð við stofnæðar eru sagðar forsendur fyrir þéttbyggðu borgarumhverfi sem styðji við breyttar áherslur í samgöngumálum.

Á svæðinu er gert ráð fyrir tveimur grunnskólum og einum safnskóla í bland við blómlega þjónustu- og atvinnustarfsemi við Krossmýrartorg. Hryggjarstykki uppbyggingarinnar er meðfram fyrirhugaðri Borgarlínu sem liggur í gegnum mitt skipulagssvæðið.

Með tilkomu Borgarlínu mun Ártúnshöfði verða beintengdur miðborginni og tengja saman menningu og mannlíf austur- og vesturhluta borgarinnar.

Svæðið liggur meðfram fyrirhugaðari Borgarlínu.
Svæðið liggur meðfram fyrirhugaðari Borgarlínu. Teikning/Reykjavíkurborg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert